Skoða námskeið

Bachata fyrir millistig

Skrifað 5. janúar 2012: Vinsamlegast athugið að skráningu á stökum dömum hefur verið lokað í bili. Enn er opið fyrir skráningu á stökum herrum og pör. Dömur sem skrá sig stakar héðan í frá fara á biðlista og við reynum að útvega þeim félaga á námskeiðið.

SalsaIceland ríður á vaðið og býður námskeið í bachata fyrir þá sem dansað hafa eitthvað bachata áður, og þyrstir í meira. Mike kennir námskeiðið í klukkustund í senn í 6 skipti. Ekki þarf að hafa félaga til að skrá sig, þó það sé ódýrara.

Við bendum á nokkur dæmi um vettvang til að finna sér félaga: Fésbókarsíðuna okkar (þið megið gjarnan birta auglýsingu um félaga á henni), önnur námskeið SI, og salsakvöldin góðu.

Ef þið hafið spurningar, ekki hika við að hafa samband: salsaiceland@salsaiceland.is

Innifalið í námskeiðsgjaldi eru æfingatækifæri hvern laugardag milli 16:00 og 17:00.
Skráning hefst 27. desember.

Fyrsta kennslustund: 17. jan.

Frekari upplýsingar

4c, seinni hópur, hefst 18. janúar

4. stig c) hluti hefst 18. janúar. Efni námskeiðsins er kúbanskt salsa fyrir lengra komna, ásamt Rueda de Casino. Kíkið endilega á umfjöllun um mismunandi afbrigði salsa hér. Námskeið á 3. og 4. stigi SalsaIceland fara fram með 2 fyrir 1 sniði fyrir strákana, hóparnir eru tveir, með sameiginlegum hálftíma á milli. Skráning fer einungis fram í pörum, en þeir sem skrá sig án félaga fara á biðlista og fá sendan póst ef við finnum félaga fyrir ykkur.

SalsaIceland áskilur sér rétt til að sameina hópana í eitt holl ef ekki næst lágmarksþátttaka í tvö holl.

Hjá SalsaIceland er boðið upp á þrjú námskeið á þessu getustigi, 4. stig a), b) og c). Það skiptir ekki máli í hvaða röð þessi námskeið eru tekin, aðeins þarf að hafa lokið 3. stigi (eða sambærilegu stigi annars staðar) til að komast á námskeið 4c.

Kennarar eru Hanna og Palli, og póst má senda á hanna@salsaiceland.is ef þið hafið spurningar.

Innifalið í námskeiðsverði eru æfingatækifæri hvern laugardag frá kl. 16:00-17:00 í stúdíó SI. Skráning á námskeiðið hefst 14. desember.

Fyrsta kennslustund: 18. jan.

Frekari upplýsingar

4c, fyrri hópur, hefst 18. janúar

Cuban chachacha 1

ChaChaCha dansinn verður sífellt vinsælli meðal nemenda okkar, svo og tónlistin sem ómar reglulega á danskvöldunum okkar. ChaChaCha reynist skemmtileg viðbót við dansflóruna, og tónlistin er skemmtilega frábrugðin salsatónlistinni (þó áþekk).

Chachacha cuban style hefst 19.janúar. Ekki þarf félaga til að skrá sig, en það er ódýrara.

Þetta námskeið er fyrir alla sem hafa lokið 2. stigi hjá SalsaIceland. Við förum í chachacha frá grunni, en lengra komnir nemendur ættu samt að fá eitthvað fyrir sinn snúð þar sem við dönsum kúbanskt chachacha, en ekki á línu.

Námskeiðið er 6 vikur og skráning hefst 29. desember..

Kennari námskeiðisins er Óli. Ef þú ert með einhverjar spurningar þá erum við tilbúin til svara olafur@salsaiceland.is.
Athugið! Við lokum námskeiðinu fyrir skráningar á stökum aðilum þegar/ef kynjahlutföll verða of ójöfn. Við hvetjum ykkur því til að tryggja ykkur pláss með því að skrá ykkur félaga eða vera snemma í því að skrá ykkur. Þessi vettvangur hefur reynst hentugur til að finna félaga:Fésbókarsíðan okkar (þar sem þið getið birt auglýsingu eftir félaga á námskeiði), SI námskeiðin og SI salsakvöldin.

Fyrsta kennslustund: 19. jan.

Frekari upplýsingar

2. stig X-kennt 1x í viku

2. stigs námskeið, fyrir alla þá sem lokið hafa byrjendanámskeiði SalsaIceland, hefst sunnudaginn 22. janúar. Kennt er á sunnudögum í 90 mín í senn, og námskeiðið stendur yfir í 10 vikur.

X námskeiðin okkar eru sérstaklega hugsuð fyrir pör og aðra aðila sem vilja dansa 1x í viku í stað 2x í viku. Að venju þarf ekki félaga til að skrá sig, þó það sé ódýrara.

Við minnum þá SalsaIceland herra sem tekið hafa 2. stigs námskeiðin áður, að þeir fá ÓKEYPIS í 2. skipti á námskeiðið! Þeir sem hafa áhuga á því eru hvattir til að senda póst á dagmar@salsaiceland.is.

Innifalið í námskeiðsverði er æfingatækifæri hvern laugardag í stúdíó SI, kl.16:00-17:00.

Fyrsta kennslustund: 22. jan.

Frekari upplýsingar