Skoða námskeið
Byrjendanámskeið 15. ágúst
Byrjendanámskeið sem hefst 15. ágúst og er kennt tvisvar í viku, á miðvikudögum og sunnudögum, í 1,5 klst í senn. Óþarft er að hafa félaga til að skrá sig, (þó það sé ódýrara) enda skiptum við reglulega um félaga og þannig dansa allir við alla (nema þau pör sem vilja bara dansa við hvort annað, sem er í fínu lagi).
Við minnum alla herra SalsaIceland á að þeir sem hafa tekið byrjendanámskeið hjá okkur að þeir mega taka þátt í námskeiðinu aftur frítt, til æfinga.
Skráning er hafin hér á heimasíðunni, við bendum stökum dömum á að skrá sig sem fyrst, þar sem við neyðumst til að loka námskeiðunum þegar kynjahlutföllin verða of ójöfn.
Fyrsta kennslustund: 15. ág.