Skoða námskeið: Byrjendanámskeið 15. ágúst

Skráning hér!

Lýsing

ATHUGIÐ! Við höfum neyðst til að loka fyrir skráningar á stökum dömum á námskeiðið. Enn er opið fyrir skráningu á pörum og stökum herrum. Áhugasömum dömum sem vantar herra er bent á að skrá sig stakar eða að senda okkur póst. Þær fara þá á biðlista. Þeim er einnig bent á að annað byrjendanámskeið sem kennt verður 1x í viku hefst í lok ágúst, og hafa þær forgang á það námskeið þegar skráning hefst.
Byrjendanámskeið sem hefst 15. ágúst og er kennt tvisvar í viku, á miðvikudögum og sunnudögum, í 1,5 klst í senn. Óþarft er að hafa félaga til að skrá sig, (þó það sé ódýrara) enda skiptum við reglulega um félaga og þannig dansa allir við alla (nema þau pör sem vilja bara dansa við hvort annað, sem er í fínu lagi).

Við minnum alla herra SalsaIceland á að þeir sem hafa tekið byrjendanámskeið hjá okkur að þeir mega taka þátt í námskeiðinu aftur frítt, til æfinga.

Skráning er hafin hér á heimasíðunni, við bendum stökum dömum á að skrá sig sem fyrst, þar sem við neyðumst til að loka námskeiðunum þegar kynjahlutföllin verða of ójöfn.

Kennslustund

Dags. Klukkan Dagur Staður
15. ág. 17:00 - 18:30 sunnudagur Þórshamar, Brautarholti 22
18. ág. 18:30 - 20:00 miðvikudagur Kiwanis húsið, Engjateigi 11
22. ág. 17:00 - 18:30 sunnudagur Þórshamar, Brautarholti 22
25. ág. 18:30 - 20:00 miðvikudagur Kiwanis húsið, Engjateigi 11
29. ág. 17:00 - 18:30 sunnudagur Þórshamar, Brautarholti 22
1. sept. 18:30 - 20:00 miðvikudagur Kiwanis húsið, Engjateigi 11
5. sept. 17:00 - 18:30 sunnudagur Þórshamar, Brautarholti 22
8. sept. 18:30 - 20:00 miðvikudagur Kiwanis húsið, Engjateigi 11
12. sept. 17:00 - 18:30 sunnudagur Þórshamar, Brautarholti 22
15. sept. 18:30 - 20:00 miðvikudagur Kiwanis húsið, Engjateigi 11

Verð og skráning

  • Einstaklingsverð: 19.500 kr.
  • Paraverð: 35.000 kr.

Skráning hér!