Skoða námskeið: 3c, seinni hópur

Skráning hér!

Lýsing

Efni námskeiðisins er Cuban style salsa, þar sem farið er í undirstöðuatriði kúbansks stíls, nýtt grunnspor kemur til sögunnar og einfaldar fléttur eru kenndar. Einnig fá nemendur tækifæri til að tileinka sér grunnatriði rueda de casino.

Athugið, hér er einungis skráð í pörum, og nemendum SalsaIceland er bent á að tala sig saman á námskeiðum/salsakvöldum/facebook til að finna sér félaga.
Áhugasamir stakir aðilar geta skráð sig án félaga eða sent okkur póst til að komast á biðlista. Þeir verða þá látnir vita þegar/ef við finnum fyrir þá félaga.
Hér er í boði 2 fyrir 1 tilboð fyrir strákana– þeir fá tvöfaldan tíma í hverri kennslustund námskeiðsins, og dansa í fyrra holli og seinna holli. Inn á milli holla er sameiginlegur hálftími. Þannig skrá dömurnar sig með félaga sínum í annað hvort fyrra eða seinna holl námskeiðsins, en herrann fær bæði hollin á verði eins. Hann getur tilgreint félaga sína á báðum hollunum, eða gefið kost á sér sem herra fyrir dömur sem vantar félaga og eru á biðlista SalsaIceland.

Hjá SalsaIceland er boðið upp á þrjú námskeið á þessu getustigi, 3. stig a), b) og c). Við vekjum athygli á því að það skiptir ekki máli í hvaða röð þessi námskeið eru tekin.

Kennslustund

Dags. Klukkan Dagur Staður
17. ág. 19:30 - 21:00 þriðjudagur Kiwanis húsið, Engjateigi 11
24. ág. 19:30 - 21:00 þriðjudagur Kiwanis húsið, Engjateigi 11
31. ág. 19:30 - 21:00 þriðjudagur Kiwanis húsið, Engjateigi 11
7. sept. 19:30 - 21:00 þriðjudagur Kiwanis húsið, Engjateigi 11
14. sept. 19:30 - 21:00 þriðjudagur Kiwanis húsið,Engjateigi 11
21. sept. 19:30 - 21:00 þriðjudagur Kiwanis húsið, Engjateigi 11

Verð og skráning

  • Einstaklingsverð: 11.000 kr.
  • Paraverð: 22.000 kr.

Skráning hér!