Skoða námskeið: 4c, seinni hópur

Skráning hér!

Lýsing

16. ágúst förum við af stað með 4. stigs námskeið, c) hluta. Hér fara Mike og Edda í kúbanskt salsa á lengra komnu stigi, ásamt Rueda de Casino og grunnskrefunum í rumbu. Kíkið endilega á umfjöllun um mismunandi afbrigði salsa hér. Gjaldgengir nemendur á 4c eru þeir sem lokið hafa 3. stigi, 4a og 4b er ákjósanlegt, en engin skylda. Á 4c er krafist skráningar í pörum og við bendum á salsakvöld, námskeið og facebook sem vettvang til að finna sér félaga. Skráning fer fram í pörum og herrar fá "2 fyrir 1" og manna tvær dömur. Lesa má um þetta fyrirkomulag hér . Þið sem skráið ykkur án félaga á netinu, eða sendið okkur póst skráist á biðlista og fáið þá félaga ef við finnum slíkan fyrir ykkur.

Kennslustund

Dags. Klukkan Dagur Staður
16. ág. 19:30 - 21:00 mánudagur Kiwanis húsið, Engjateigi 11
23. ág. 19:30 - 21:00 mánudagur Kiwanis húsið, Engjateigi 11
30. ág. 19:30 - 21:00 mánudagur Kiwanis húsið, Engjateigi 11
6. sept. 19:30 - 21:00 mánudagur Kiwanis húsið, Engjateigi 11
13. sept. 19:30 - 21:00 mánudagur Kiwanis húsið,Engjateigi 11
20. sept. 19:30 - 21:00 mánudagur Kiwanis húsið, Engjateigi 11

Verð og skráning

  • Einstaklingsverð: 11.000 kr.
  • Paraverð: 22.000 kr.

Skráning hér!