Skoða námskeið: Byrjendur X -kennt 1x í viku, hefst 5. febrúar

Skráning hér!

Lýsing

Skrifað 1. febrúar. Lokað hefur verið fyrir skráningu á þetta námskeið, nema fyrir staka herra, sem enn er opið fyrir. Þeir sem skrá sig héðan í frá fara á biðlista, og haft verður samband við þá varðandi horfur á að komast að. Takk fyrir undirtektirnar!

Í febrúar hefst það byrjendanámskeið hjá SalsaIceland sem kennt er 1x í viku (til aðgreiningar frá hinum sem kennd eru 2x í viku). Þetta námskeið er í daglegu tali innan SI fjölskyldunnar kallað "Byrjendanámskeið X".

Þetta námskeið er 12 skipti, 80 mínútur í senn, það hefst 5. febrúar og lýkur því 29. apríl.

X námskeiðin eru hugsuð fyrir þau pör og aðra sem vilja dansa 1x í viku og er öllum opið, með eða án félaga. Eftir námskeiðið eiga allir þátttakendur að vera tilbúnir á dansgólfið á salsakvöldunum okkar! Nánari upplýsingar um uppbyggingu námskeiða má lesa hér.

Við bendum eldri og reyndari nemendum okkar á að allir herrar sem lokið hafa byrjendanámskeiði geta mætt á annað byrjendanámskeið FRÍTT, svo lengi sem námskeiðið er ekki fullt fyrir staka herra. Fyrir þá sem eru áhugasamir um þetta: - sendið okkur póst til að tilkynna þátttöku á andri@salsaiceland.is.

Kennarar námskeiðsins eru þau Andri og Kolla. Ef þú ert með einhverjar spurningar þá erum við tilbúin til svara salsaiceland@salsaiceland.is.

Innifalið í námskeiðsverði eru æfingatækifæri í stúdíó SI alla laugardaga kl. 16:00-17:00.

Skráning á námskeiðið hefst 3 vikum fyrir námskeiðsupphaf, eða 15. janúar

Kennslustund

Dags. Klukkan Dagur Staður
5. feb. 15:30 - 16:50 sunnudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
12. feb. 15:30 - 16:50 sunnudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
19. feb. 15:30 - 16:50 sunnudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
26. feb. 15:30 - 16:50 sunnudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
4. mars 15:30 - 16:50 sunnudagur Stóri salur, Grensásvegi 12a
11. mars 15:30 - 16:50 sunnudagur Stóri salur, Grensásvegi 12a
18. mars 15:30 - 16:50 sunnudagur Stóri salur, Grensásvegi 12a
25. mars 15:30 - 16:50 sunnudagur Stóri salur, Grensásvegi 12a
1. apríl 15:30 - 16:50 sunnudagur Stóri Salur,Grensásvegi 12a
8. apríl 15:30 - 16:50 sunnudagur PÁSKAFRÍ!!
15. apríl 15:30 - 16:50 sunnudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
22. apríl 15:30 - 16:50 sunnudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
29. apríl 15:30 - 16:50 sunnudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a

Verð og skráning

  • Einstaklingsverð: 21.500 kr.
  • Paraverð: 37.000 kr.

Skráning hér!