Skoða námskeið: 5a, hefst mánudaginn 16. janúar
Lýsing
Á 5a er haldið áfram með LA style þar sem Edda og Óli fara í margfalda snúninga, flóknar fléttur, og þyngri stýra/fylgjatækni, ásamt meiri áherslu á shines. Tvöfaldir inside turns, notkun á 4 og 8 ofl er einnig á dagskránni.
Þetta er LA style salsa fyrir þá sem lokið hafa stigunum okkar fjórum. Þeir sem eru áhugasamir en hafa annan dansbakgrunn en stigin okkar fjögur geta haft samband á salsaiceland@salsaiceland.is.. Venjulega beinum við nemendum sem þessum í einkatíma hjá kennurum okkar til stöðumats og mögulega til að brúa bilið ef upp á vantar.
Á þessu námskeiði höfum við einungis eitt holl, og förum fram á skráningu í pörum. Heppilegur staður til að finna félaga er á námskeiðum, Fésbókinni eða á salsakvöldum. Þið getið einnig skráð ykkur á biðlista með því að senda okkur mail.
Kennarar námskeiðsins eru þau Óli og Edda. Ef þú ert með einhverjar spurningar þá erum við tilbúin til svara salsaiceland@salsaiceland.is.
Skráning hefst þriðjudaginn 13. desember. Innifalið í námskeiðsverði er æfingatækifæri hvern laugardag kl. 16:00-17:00.
Kennslustund
| Dags. | Klukkan | Dagur | Staður |
|---|---|---|---|
| 16. jan. | 18:00 - 19:30 | mánudagur | Stóri Salur, Grensásvegi 12a |
| 23. jan. | 18:00 - 19:30 | mánudagur | Stóri Salur, Grensásvegi 12a |
| 30. jan. | 18:00 - 19:30 | mánudagur | Stóri Salur, Grensásvegi 12a |
| 6. feb. | 18:00 - 19:30 | mánudagur | Stóri Salur, Grensásvegi 12a |
| 13. feb. | 18:00 - 19:30 | mánudagur | Stóri salur, Grensásvegi 12a |
| 20. feb. | 18:00 - 19:30 | mánudagur | Stóri salur, Grensásvegi 12a |
Verð og skráning
- Einstaklingsverð: 12.500 kr.
- Paraverð: 25.000 kr.