Skoða námskeið: 4c, seinni hópur, hefst 18. janúar

Skráning hér!

Lýsing

4. stig c) hluti hefst 18. janúar. Efni námskeiðsins er kúbanskt salsa fyrir lengra komna, ásamt Rueda de Casino. Kíkið endilega á umfjöllun um mismunandi afbrigði salsa hér. Námskeið á 3. og 4. stigi SalsaIceland fara fram með 2 fyrir 1 sniði fyrir strákana, hóparnir eru tveir, með sameiginlegum hálftíma á milli. Skráning fer einungis fram í pörum, en þeir sem skrá sig án félaga fara á biðlista og fá sendan póst ef við finnum félaga fyrir ykkur.

SalsaIceland áskilur sér rétt til að sameina hópana í eitt holl ef ekki næst lágmarksþátttaka í tvö holl.

Hjá SalsaIceland er boðið upp á þrjú námskeið á þessu getustigi, 4. stig a), b) og c). Það skiptir ekki máli í hvaða röð þessi námskeið eru tekin, aðeins þarf að hafa lokið 3. stigi (eða sambærilegu stigi annars staðar) til að komast á námskeið 4c.

Kennarar eru Hanna og Palli, og póst má senda á hanna@salsaiceland.is ef þið hafið spurningar.


Innifalið í námskeiðsverði eru æfingatækifæri hvern laugardag frá kl. 16:00-17:00 í stúdíó SI. Skráning á námskeiðið hefst 14. desember.

Kennslustund

Dags. Klukkan Dagur Staður
18. jan. 20:30 - 22:00 miðvikudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
25. jan. 20:30 - 22:00 miðvikudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
1. feb. 20:30 - 22:00 miðvikudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
8. feb. 20:30 - 22:00 miðvikudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
15. feb. 20:30 - 22:00 miðvikudagur Stóri salur, Grensásvegi 12a
22. feb. 20:30 - 22:00 miðvikudagur Stóri salur, Grensásvegi 12a

Verð og skráning

  • Einstaklingsverð: 12.500 kr.
  • Paraverð: 25.000 kr.

Skráning hér!