Skoða námskeið: 3c, fyrri hópur, hefst 17. janúar
Lýsing
3. stig c) hluti, hefst 17. janúar. Efni námskeiðisins er Cuban style salsa, og er fyrir alla sem hafa lokið 2. stigi hjá SalsaIceland. Skráning fer eingöngu fram í pörum. Áhugasamir stakir aðilar geta skráð sig án félaga og fara þar með á biðlista. Þeir verða þá látnir vita þegar/ef við finnum fyrir þá félaga.
Á þessu námskeiði er í boði 2 fyrir 1 tilboð, fyrir þá stráka sem skrá sig með félaga í bæði holl. 2 fyrir 1 virkar þannig að herrar fá tvöfaldan tíma í hverri kennslustund námskeiðsins, og dansa þannig í fyrra holli og seinna holli með sitthvorri dömunni, en greiða bara eitt verð. Inn á milli holla er sameiginlegur hálftími. Þannig skrá dömurnar sig með félaga sínum í annað hvort fyrra eða seinna holl námskeiðsins, en herrann fær bæði hollin á verði eins. Við bendum þeim sem skrá sig án félaga á að þeir lenda á biðlista, og að tilboðið gildir aðeins fyrir þá herra sem skrá sig með/fá úthlutað dömu í bæði holl. SalsaIceland áskilur sér rétt til að sameina hópana í eitt holl ef ekki næst lágmarksþátttaka í tvö holl.
Hjá SalsaIceland er boðið upp á þrjú námskeið á þessu getustigi, 3. stig a), b) og c). Það skiptir ekki máli í hvaða röð þessi námskeið eru tekin, aðeins þarf að hafa lokið 2. stigi til að komast á námskeið 3 c).
Þórunn og Jonni kenna þetta námskeið. Ef þú ert með einhverjar spurningar þá erum við tilbúin til svara thorunn@salsaiceland.is.
Innifalið í námskeiðsverði eru æfingatækifæri hvern laugardag frá kl. 16:00-17:00 í stúdíó SI. Skráning á námskeiðið hefst 8. desember.
Kennslustund
| Dags. | Klukkan | Dagur | Staður |
|---|---|---|---|
| 17. jan. | 19:30 - 21:00 | þriðjudagur | Stóri Salur, Grensásvegi 12a |
| 24. jan. | 19:30 - 21:00 | þriðjudagur | Stóri Salur, Grensásvegi 12a |
| 31. jan. | 19:30 - 21:00 | þriðjudagur | Stóri Salur, Grensásvegi 12a |
| 7. feb. | 19:30 - 21:00 | þriðjudagur | Stóri Salur, Grensásvegi 12a |
| 14. feb. | 19:30 - 21:00 | þriðjudagur | Stóri salur, Grensásvegi 12a |
| 21. feb. | 19:30 - 21:00 | þriðjudagur | Stóri salur, Grensásvegi 12a |
Verð og skráning
- Einstaklingsverð: 12.500 kr.
- Paraverð: 25.000 kr.