Skoða námskeið: Bachata fyrir millistig
Lýsing
Skrifað 5. janúar 2012: Vinsamlegast athugið að skráningu á stökum dömum hefur verið lokað í bili. Enn er opið fyrir skráningu á stökum herrum og pör. Dömur sem skrá sig stakar héðan í frá fara á biðlista og við reynum að útvega þeim félaga á námskeiðið.
SalsaIceland ríður á vaðið og býður námskeið í bachata fyrir þá sem dansað hafa eitthvað bachata áður, og þyrstir í meira. Mike kennir námskeiðið í klukkustund í senn í 6 skipti. Ekki þarf að hafa félaga til að skrá sig, þó það sé ódýrara.
Við bendum á nokkur dæmi um vettvang til að finna sér félaga: Fésbókarsíðuna okkar (þið megið gjarnan birta auglýsingu um félaga á henni), önnur námskeið SI, og salsakvöldin góðu.
Ef þið hafið spurningar, ekki hika við að hafa samband: salsaiceland@salsaiceland.is
Innifalið í námskeiðsgjaldi eru æfingatækifæri hvern laugardag milli 16:00 og 17:00.
Skráning hefst 27. desember.
Kennslustund
| Dags. | Klukkan | Dagur | Staður |
|---|---|---|---|
| 17. jan. | 18:30 - 19:30 | þriðjudagur | Stóri Salur, Grensásvegi 12a |
| 24. jan. | 18:30 - 19:30 | þriðjudagur | Stóri Salur, Grensásvegi 12a |
| 31. jan. | 18:30 - 19:30 | þriðjudagur | Stóri Salur, Grensásvegi 12a |
| 7. feb. | 18:30 - 19:30 | þriðjudagur | Stóri Salur, Grensásvegi 12a |
| 14. feb. | 18:30 - 19:30 | þriðjudagur | Stóri salur, Grensásvegi 12a |
| 21. feb. | 18:30 - 19:30 | þriðjudagur | Stóri salur, Grensásvegi 12a |
Verð og skráning
- Einstaklingsverð: 9.000 kr.
- Paraverð: 16.200 kr.