Skoða námskeið: Cuban chachacha 1
Lýsing
ChaChaCha dansinn verður sífellt vinsælli meðal nemenda okkar, svo og tónlistin sem ómar reglulega á danskvöldunum okkar. ChaChaCha reynist skemmtileg viðbót við dansflóruna, og tónlistin er skemmtilega frábrugðin salsatónlistinni (þó áþekk).
Chachacha cuban style hefst 19.janúar. Ekki þarf félaga til að skrá sig, en það er ódýrara.
Þetta námskeið er fyrir alla sem hafa lokið 2. stigi hjá SalsaIceland. Við förum í chachacha frá grunni, en lengra komnir nemendur ættu samt að fá eitthvað fyrir sinn snúð þar sem við dönsum kúbanskt chachacha, en ekki á línu.
Námskeiðið er 6 vikur og skráning hefst 29. desember..
Kennari námskeiðisins er Óli. Ef þú ert með einhverjar spurningar þá erum við tilbúin til svara olafur@salsaiceland.is.
Athugið! Við lokum námskeiðinu fyrir skráningar á stökum aðilum þegar/ef kynjahlutföll verða of ójöfn. Við hvetjum ykkur því til að tryggja ykkur pláss með því að skrá ykkur félaga eða vera snemma í því að skrá ykkur. Þessi vettvangur hefur reynst hentugur til að finna félaga:Fésbókarsíðan okkar (þar sem þið getið birt auglýsingu eftir félaga á námskeiði), SI námskeiðin og SI salsakvöldin.
Kennslustund
| Dags. | Klukkan | Dagur | Staður |
|---|---|---|---|
| 19. jan. | 18:30 - 19:30 | fimmtudagur | Stóri Salur, Grensásvegi 12a |
| 26. jan. | 18:30 - 19:30 | fimmtudagur | Stóri Salur, Grensásvegi 12a |
| 2. feb. | 18:30 - 19:30 | fimmtudagur | Stóri Salur, Grensásvegi 12a |
| 9. feb. | 18:30 - 19:30 | fimmtudagur | Stóri Salur,Grensásvegi 12a |
| 16. feb. | 18:30 - 19:30 | fimmtudagur | Stóri salur, Grensásvegi 12a |
| 23. feb. | 18:30 - 19:30 | fimmtudagur | Stóri salur, Grensásvegi 12a |
Verð og skráning
- Einstaklingsverð: 9.000 kr.
- Paraverð: 16.200 kr.