Skoða námskeið: Zumba - dansað í form, hefst 12. jan

Skráning hér!

Lýsing


SalsaIceland býður upp á Zumba sem er skemmtileg blanda af dansi og líkamsrækt.

Nýtt 10 skipta námskeið hefst fimmtudaginn 12. janúar og eru tímarnir á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:15-18:15.

NÝJUNG Á VORÖNN: Opnir laugardagstímar - þetta eru opnir tímar fyrir klippkorthafa, námskeiðsþátttakendur og aðra gesti og gangandi. Stakur tími kostar 1300 en þeir sem kaupa heilt námskeið fá 50% afslátt.

Fleiri nýjungar: Í fyrsta skipti er nú hægt að kaupa annarkort í Zumba fyrir þá alla hörðustu, sem gildir alla önnina (í 15 vikur) og fá þeir laugardagstímana ókeypis!

Fyrir þá sem vilja ekki skuldbinda sig er líka hægt að kaupa 10 skipta klippikort í zumba sem nýtist í alla tíma, nú eða bara að mæta í staka tíma þegar hentar. Við minnum á að allir þátttakendur fá fyrsta tímann frítt! Lesið meira um zumba hjá SalsaIceland hérna. Athugið, að það eru alltaf a.m.k. 15 laus pláss fyrir klippkorthafa í hverjum tíma.

Verðlistinn okkar svona:

10 skipta námskeið: 9.500 kr.
Annarkort (15 vikur): 25.700 kr.
10 skipta klippikort: 12.000 kr.
5 skipta laugardagskort: 5.500 kr.
Stakur tími: 1.300 kr.

Zumba hefur farið eins og eldur um sinu hérlendis sem erlendis undanfarin misseri. Engrar kunnáttu er krafist, hvorki í dansi né líkamsrækt, við notum einföld skref og rútínur byggðar upp á einfaldan hátt sem ættu að henta öllum!
Við bjóðum sem fyrr hágæða kennslu hjá þrautreyndum kennurum. Ekki verður tekið við fleiri en 25 nemendum í hverjum tíma, og aðgangi er forgangsraðað svona: þátttakendur á námskeiði og annarkorthafar hafa forgang, síðan þeir sem eru með klippikort og loks þeir sem kaupa staka tíma. Athugið að hingað til hefur ekki þurft að vísa neinum þátttakendum frá vegna fjölda.

Skráning á námskeið


Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig á 10 skipta námskeið eiga að skrá sig hér á síðunni. Þeir sem vilja kaupa annarkort, klippikort eða mæta í staka tíma eru velkomnir í stúdíó SalsaIceland þegar þeim hentar. Athugið að stúdíóið er opið 18:30-22:00 mánudaga til fimmtudaga.

Munið staðsetninguna okkar, stúdíó SalsaIceland er til húsa að Grensásvegi 12a, 2. hæð.

Kennslustund

Dags. Klukkan Dagur Staður
12. jan. 17:15 - 18:15 fimmtudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
14. jan. 11:00 - 12:00 laugardagur OPNIR TÍMAR / OPEN CLASSES
17. jan. 17:15 - 18:15 þriðjudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
19. jan. 17:15 - 18:15 fimmtudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
21. jan. 11:00 - 12:00 laugardagur OPNIR TÍMAR / OPEN CLASSES
24. jan. 17:15 - 18:15 þriðjudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
26. jan. 17:15 - 18:15 fimmtudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
28. jan. 11:00 - 12:00 laugardagur OPNIR TÍMAR / OPEN CLASSES
31. jan. 17:15 - 18:15 þriðjudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
2. feb. 17:15 - 18:15 fimmtudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
4. feb. 11:00 - 12:00 laugardagur OPNIR TÍMAR / OPEN CLASSES
7. feb. 17:15 - 18:15 þriðjudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
9. feb. 17:15 - 18:15 fimmtudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
11. feb. 11:00 - 12:00 laugardagur OPNIR TÍMAR / OPEN CLASSES
14. feb. 17:15 - 18:15 þriðjudagur Stóri Salur, Grensásvegi 12a
17. feb. 15:30 - 17:30 föstudagur asdjfl´kajd

Verð og skráning

  • Einstaklingsverð: 9.500 kr.
  • Paraverð: 19.000 kr.

Skráning hér!