Skoða frétt: Haustönn 2010 hefst af fullum krafti!
Skrifað: 27. júlí 17:14
Haustönn 2010 hefst af fullum krafti um miðjan ágúst. Að venju verða fjöldi námskeiða í boði.
Fyrstu námskeiðin hefjast um miðjan ágúst, en næsta námskeiðshrina hefst um mánaðarmótin september/október - þar á meðal annað byrjendanámskeið!
Við bendum áhugasömum á að skrá sig á póstlistann okkar og gerast þannig áskrifendur að ca vikulegum tölvupósti frá okkur sem segir frá því helsta sem er að gerast.
Og munið, salsakvöldin okkar eru haldin reglulega - auglýst hér á heimasíðunni og á póstlistanum - og þar eru allir velkomnir í ókeypis prufutíma eða ókeypis snúning á dansgólfinu í okkar frábæra salsasamfélagi!
Skráning er hafin á byrjendanámskeið 15 ágúst.
Spurningar varðandi námskeiðin eða starfsemina má senda á salsaiceland@salsaiceland.is.