Skoða frétt: Byrjendanámskeið X að hefjast 29. ágúst.

Skrifað: 8. ág. 16:50

Í haust býður SalsaIceland upp á 2 byrjendanámskeið - eitt kennt 1x í viku (við köllum það oft byrjendanámskeið X) og annað kennt tvisvar í viku.
Þann 29. ágúst hefst byrjendanámskeiðið sem kennt er 1x í viku.
Við höfum oft beint pörum sem koma saman að dansa á þetta námskeið, þó það sé opið öllum, með eða án félaga. EFtir námskeiðið eiga allir þátttakendur að vera tilbúnir á dansgólfið á salsakvöldunum okkar, og við bendum eldri og reyndari nemendum okkar á að allir herrar sem lokið hafa byrjendanámskeiði geta mætt á annað byrjendanámskeið, FRÍTT. Fyrir þá sem eru áhugasamir um þetta: - sendið okkur póst til að tilkynna þátttöku á hanna@salsaiceland.is.
Skráning á námskeiðið er hafin hér á heimasíðunni.