Skoða frétt: SalsaIceland auglýsir eftir nýjum meðlimum í sýningarhóp nemenda!
Skrifað: 12. ág. 9:20
Langar þig að hella þér í salsað og prófa að vera í sýningarhópi? Stjórn SalsaIceland leitar nú að nýjum félögum í nemendasýningarhóp SalsaIceland (SIST hóp, sbr. SalsaIceland student team). 4 laus pláss eru í hópinn, að þessu sinni leitum við einungis að dömum til að taka þátt í lady style hópi, eða pardanshópi.
Við leitum að fólki sem:
- Hefur tíma/getu og rými til að sinna miklu salsa
- Hefur lokið 3. stigi (eða hefur sambærilega kunnáttu), helst hjá SalsaIceland (hér má sjá getukröfur okkar fyrir 3. stig)
- Hefur útgeislun á sviði
- Þrífst í hópi og vill læra
SIST hópurinn starfar í nánu samstarfi við stjórn SI að ýmsum verkefnum SalsaIceland, m.a. við að: dansa sem taxidansarar á salsakvöldum, aðstoða á 1. og 2. stigs námskeiðum/helgarnámskeiðum, sýna við ýmis tækifæri ofl.
Þetta samstarf er kynnt ítarlega og gefið er tækifæri til spjalls á opnum fundi sem haldinn verður fyrir umsækjendur sunnudagskvöldið 22. ágúst í Karatefélaginu Þórshamri kl. 19:00. Eftir fundinn verður haldin sameiginleg æfing fyrir umsækjendur þar sem farið verður í footwork og pardans. Umsækjendum verður svo tilkynnt um niðurstöður símleiðis í komandi viku.
Athugið! Þátttaka í fundi/æfingu er engan veginn bindandi. Áhugasamir eru hvattir til að koma og taka þátt, og geta svo látið vita eftir á hvort þeir hafa ennþá áhuga á þátttöku.
Byrjar: 22. ág. 19:00 / Endar: 22. ág. 21:00