Skoða frétt: "Macho moves" - men's style með Mike að hefjast 1. september

Skrifað: 25. ág. 10:14

Strákarnir koma saman og bæta stílinn á dansgólfinu! Þetta er oft gott að gera í friði fyrir dömunum og hér gefst herrunum tækifæri til þess undir handleiðslu Mike á fjögurra skipta námskeiði. Kennt er á miðvikudögum kl. 20:00-21:00 í Kiwanis húsinu og skráning er hafin hér á heimasíðunni.