Skoða frétt: Lady style helgarnámskeið með Marinu Prada

Skrifað: 5. sept. 11:46

Helgina 24.-26. september næstkomandi njóta SI dömur leiðsagnar Marinu Prada í lady style og krydda dansinn til að gera hann ennþá skemmtilegri!

Lady style námskeiðin hafa slegið í gegn, og enginn kennir þau betur en Marina Prada! Hér má sjá viðtal við Marinu og Eddu, tekið á einu af fyrstu lady style námskeiðunum!

Í boði eru námskeið á þremur getustigum, og einnig aukatími í Couple styling - þar sem pörum er kennd styling á algengustu LA style fléttunum í lokuðu og opnu haldi.

Námskeiðsgjaldi er haldið í lágmarki og öllum dömum okkar er bent á að nýta sér þetta frábæra tækifæri til að auka á dansinn í lífi sínu, í þetta sinn í friði fyrir herrunum.

Hér má sjá dagskrá námskeiðsins, ásamt skiptingu á getustigum. Skráning er hafin hér á heimasíðunni, og hægt er að senda okkur póst til að skrá sig í staka tíma, eða til að fá svar við spurningum.

Byrjar: 24. sept. 18:00 / Endar: 26. sept. 17:00