Skoða frétt: Ókeypis æfingatækifærum bætt við stundaskrá SI á vorönn
Skrifað: 19. jan. 9:54
SalsaIceland bætir við ókeypis æfingatækifærum fyrir nemendur sína á stundatöflu vorannar, og býður þá velkomna í stúdíó SI alla laugardaga kl. 16:00-17:00. Engin eiginleg kennsla fer fram, en SIST meðlimur er viðstaddur. Við hvetjum nemendur okkar til að nýta sér þessi tækifæri, og tala sig saman á námskeiðum til að tryggja að þið hafið æfingafélaga. Eins og íþróttaálfurinn segir: "það er aukaæfingin sem skapar meistarann".
Fyrsta æfingatækifærið er á dagskrá laugardaginn 28. janúar, og þau verða fastur liðir á laugardögum, nema þegar helgarnámskeið með erlendum gestakennurum fara fram.