Skoða frétt: Hvar eiga „dansvanir“ heima hjá SalsaIceland?

Skrifað: 18. jan. 10:04

Okkur til mikillar ánægju fáum við reglulega til okkar áhugasama nemendur sem hafa reynslu af salsa annars staðar frá, eða hafa reynslu af öðrum dönsum. Við bendum þessum aðilum á sérstaka, ókeypis matstíma sem við bjóðum upp á. Þar gefst öllum kostur á að koma og dansa við SI kennara, og fá ráðleggingar um á hvaða getustig er best að skella sér.
Þessir tímar eru í boði fyrir upphaf byrjendanámskeiða, og stundum fyrir prufutíma á salsakvöldum, en best er að hafa samband á salsaiceland@salsaiceland.is til að fá upplýsingar um næsta matstíma.
Margir dansvanir hafa einnig farið þá leið að kaupa sér einkatíma, fá mat og ráðleggingar, og kennslu í því sem upp á vantar til að geta slegist í för með lengra komnum nemendum. Þá gengur gjaldið á einkatímanum upp í námskeiðsgjaldið.
Þetta er frekar hægt að lesa um hér.