Skoða frétt: Ert þú næsti meðlimur sýningarhóps SalsaIceland - við erum að leita að þér!

Skrifað: 16. jan. 12:00

Langar þig að hella þér í salsað og prófa að vera í sýningarhópi? SalsaIceland leitar nú að nýjum félögum í nemendasýningarhóp SalsaIceland (SIST hóp, sbr. SalsaIceland student team). A.m.k. 4 laus pláss eru í boði, fyrir dömur og herra í pardanshóp sem munu læra í sér tímum undir handleiðslu Mike.

Við leitum að fólki sem:
   - Hefur tíma/getu og rými til að sinna miklu salsa
   - Hefur lokið 3. stigi (eða hefur sambærilega kunnáttu), helst hjá SalsaIceland (hér má sjá getukröfur okkar fyrir 3. stig)
   - Hefur útgeislun á sviði
   - Þrífst í hópi og vill læra

SIST hópurinn starfar í nánu samstarfi við stjórn SI að ýmsum verkefnum SalsaIceland, m.a. við að: dansa sem taxidansarar á salsakvöldum, aðstoða á 1. og 2. stigs námskeiðum/helgarnámskeiðum, sýna við ýmis tækifæri ofl.

Þetta samstarf er kynnt ítarlega og gefið er tækifæri til spjalls á opnum fundi sem haldinn verður fyrir umsækjendur sunnudagskvöldið 22. janúar í stúdíó SI kl. 19:00. Eftir fundinn verður haldin sameiginleg æfing fyrir umsækjendur þar sem farið verður í footwork og pardans. Umsækjendum verður svo tilkynnt um niðurstöður símleiðis í komandi viku.

Athugið! Þátttaka í fundi/æfingu er engan veginn bindandi. Áhugasamir eru hvattir til að koma og taka þátt, og geta svo látið vita eftir á hvort þeir hafa ennþá áhuga á þátttöku. Áhugasamir geta sent Eddu póst með spurningar: edda@salsaiceland.is.

Byrjar: 22. jan. 19:00 / Endar: 22. jan. 21:30