Skoða frétt: Starfsmaður óskast!

Skrifað: 15. feb. 14:17

SalsaIceland óskar eftir að ráða starfsmann á skrifstofu félagsins. Helstu verkefni felast í skráningum á námskeið, innheimtu námskeiðsgjalda, uppfærslum á vef, svörum við fyrirspurnum í síma og tölvupósti og öðrum afgreiðslustörfum.

Umsækjendur þurfa að vera skipulagðir og sjálfstæðir í vinnubrögðum, vel ritfærir á íslensku og ensku, með góða kunnáttu í Word og Excel, og umfram allt að vera jákvæðir og skemmtilegir.

Gert er ráð fyrir að vinnutími verði 16 tímar á viku og einungis mánudaga til fimmtudaga, 16:45-20:45.

Umsóknir, ásamt ferilsskrá með mynd, sendast á netfangið salsaiceland@salsaiceland.is. Umsóknarfrestur er til fimmtudagsins 23. febrúar.