Fréttir
Ert þú næsti meðlimur sýningarhóps SalsaIceland - við erum að leita að þér!
Skrifað: 16. jan. 12:00
Langar þig að hella þér í salsað og prófa að vera í sýningarhópi? SalsaIceland leitar nú að nýjum félögum í nemendasýningarhóp SalsaIceland (SIST hóp, sbr. SalsaIceland student team). A.m.k. 4 laus pláss eru í boði, fyrir dömur og herra í pardanshóp sem munu læra í sér tímum undir handleiðslu Mike.
Við leitum að fólki sem:
- Hefur tíma/getu og rými til að sinna miklu salsa
- Hefur lokið 3. stigi (eða hefur sambærilega kunnáttu), helst hjá SalsaIceland (hér má sjá getukröfur okkar fyrir 3. stig)
- Hefur útgeislun á sviði
- Þrífst í hópi og vill læra
SIST hópurinn starfar í ...

Zumba í fullum gangi - hægt að slást í hópinn hvenær sem er
Skrifað: 12. jan. 22:30
Zumba er í fullum gangi, og við minnum á að námskeiðið er opið og hægt að slást í för hvenær sem er. Fyrsti tíminn er alltaf frír. Ýmsar nýjunar eru í boði í Zumbanu, svo sem laugardagstímar, og möguleiki á að spara verulega og taka zumbað alla leið á vorönn með því að kaupa sér annarkort í zumba og fá laugardagstímana ókeypis. Allar upplýsingar um zumba hjá SalsaIceland má sjá hér , og upplýsingar um námskeiðið sem hófst 12. janúar má sjá hér. Ef þið hafið spurningar ekki hika við að hafa samband: salsaiceland@salsaiceland.is.
Salsaveisla á Thorvaldsen
Skrifað: 11. jan. 11:28
Fimmtudagur 19. janúar
Ókeypis prufutími í salsa fyrir byrjendur kl. 20:00, allir velkomnir!
Að venju býður Thorvaldsen okkur geggjuð tilboð á barnum: bjór á 700, léttvín á 800 og mojito á 1000!
Opið hús með balli og sýningum!
Skrifað: 10. jan. 13:12
SalsaIceland býður öllum áhugasömum aðilum kjörið tækifæri til að prófa salsa og zumba ókeypis, á opnu húsi í janúarbyrjun. Við bendum dansvönum aðilum, með reynslu af salsa eða öðrum dönsum, sérstaklega á prufutíma fyrir dansvana, þar sem hægt er að fá einstaklingsbundið mat frá kennara SI um hvaða námskeið viðkomandi aðili á að taka stefnu á.
Allir atburðir opna hússins eru ókeypis, félagi er óþarfur, og engrar fyrirfram skráningar er krafist. Á föstudagskvöld eru í boði sýningar og ball í stúdíó SI.
Hér fyrir neðan má sjá dagskrá opna hússins hjá SalsaIceland, og nánari upplýsingar um hvern tíma má nálgast ...
Salsaveisla á Thorvaldsen
Skrifað: 4. jan. 12:30
Fimmtudagur 1. mars
Ókeypis prufutími í salsa fyrir byrjendur kl. 20:00, allir velkomnir!
Að venju býður Thorvaldsen okkur geggjuð tilboð á barnum: bjór á 700, léttvín á 800 og mojito á 1000!