Einkatímar

Þetta form kennslu verður sí vinsælla meðal nemenda SalsaIceland, hvort sem um ræðir byrjendur eða lengra komna. Það hentar vel til skjótra framfara og gefur góða æfingu í fylgja/stýra tækni, jafnt sem þarna gefst kostur á einstaklingsbundnum ráðleggingum sem geta farið ofan garð og neðan á fjölmennum námskeiðum.

Allir kennarar SalsaIceland gefa kost á sér í einkakennslu, stakur tími kostar 5000 (fyrir einstakling, 6000 fyrir par). Kennslustundin er 50 mínútur og framkvæmd tímanna er samkomulagsatriði milli nemanda og kennara.

Til að bóka má senda okkur póst á salsaiceland@salsaiceland.is.


Endrum og sinnum býður SalsaIceland Einkatímahjól. Þar dansar þátttakandi 2 lög við vanan dansara og fær eftir það ráðleggingar og leiðbeiningar um hvað betur má fara. Þetta er gert við 5 mismunandi aðila, allt SI kennarar og/eða aðila úr nemasýningahópi. Þannig eyðir nemandi tæpri klukkustund dansandi við vana félaga og fær um leið persónulegar ábendingar um fylgja/stýra tækni til framfara.