fræðsluefni
Uppruni salsa
Þó uppruni salsadansins sé ekki einungis kúbanskur er þar hægt að finna rót og arfleifð salsadansins í nútímamynd. Þar mættust þjóðdansar flóttamanna frá Haiti, rhumbudansar afríkanskra þræla, og DanSón, einn þjóðdansa Kúbubúa. Þessi blöndun dansstíla gerðist víðs vegar um heiminn, eins og Dómíníkanska lýðveldinu, Kólumbíu, Puerto Rico ofl.Samfara salsa dansinum þróaðist salsatónlistin (sjá fræðslu og meðmæli um tónlistarmenn neðar). Á 6. áratugnum flykktust Son hljómsveitir frá Kúbu til New York, þar sem tónlistar og kvikmyndaiðnaður stóð sem hæst. Við byltinguna 1959-1960 sneru margir tónlistarmannanna aftur og skildu eftir sig tóm sem Puerto Rico búar í New York fylltu á komandi áratugum. Það var einmitt í New York sem salsa-nafnið festist, og vísar í þá sósu áhrifavalda frá Puerto Rico, Afríku og Kúbu, sem til staðar er í sporunum og taktinum.
Mismunandi stílar salsadansins
Salsadansinn þróaðist ólíkt á mismunandi stöðum í heiminum. Í dag er því munur á salsa og salsa, eftir því hvar þú ert. Við mælum með því við nemendur okkar að kanna tegund salsa og finni sér stað við sitt hæfi þegar þeir ferðast, enda eru salsaaðdáendur duglegir að kynna salsasamfélag sitt á internetinu. Þá er þörf á að vita að hverju skal leita. Grundvallaratriði er hvort dansað sé á einum („on one“, grunnsporið dansað á taktinum 123,567) eða tveimur („on two, dansað á taktinum 234,678).Cuban style salsa
Cuban style er dansað á einum, og annað tveggja grunnspora: klassískt salsagrunnspor („afturábak afturábak“), eða "casino" / “espejo”, spegilskref. Í kúbanska dansinum er herrann miðpunkturinn og snýr dömunni í kringum sig, auk þess sem hann snýr sjálfum sér í flóknum fléttum sem oft sér ekkert fyrir endann á. Kúbanska salsað er upphaflegt útlit salsadansins, sem aðrir stílar hafa þróast út frá. Það hefur meiri tengingu til þeirra dansa sem teljast rætur salsadansins og hefðbundnari dansa eins og son og rumbunnar. Sumir vilja meina að dansinn sé minna áhorfendavænn en t.d. LA style salsa (sjá umfjöllun hér fyrir neðan), þó vitaskuld sé það einstaklingsbundið. Cuban style er kennt á byrjenda og framahaldsnámskeiðum SalsaIceland.
Rueda de Casino
Innan Kúbversks salsa er Rueda de Casino, eða Casino hjólið, sem er hringdans þar sem pörin dansa guapea grunnskrefið og fylgja skipunum eins stjórnanda í hringnum. Flestar flétturnar fela í sér að skipt er um dansfélaga, og þannig skapast skemmtilegt flæði þar sem allir dansa við alla. Rueda er kennt á framhaldsnámskeiðum og workshop-um SalsaIceland
LA style salsa
Í Los Angeles þróaðist svokallaður “LA style” af salsa, oft kallað “Á línu” eða “on line", dansað á einum. Parið dansar á línu og skiptir um stað á henni í fléttum og snúningum. Hér koma líka inn ýmis trikk og akróbatík eins og dýfur og stökk, sem gerir LA style að vinsælu keppnisformi í salsa, og áhorfendavænu dansformi. LA style er kennt á byrjenda og framhaldsnámskeiðum SalsaIceland.
Puerto Rico Style Salsa vs New York style salsa
Puerto Rican style salsa er dansað á línu á taktinum einum eða tveimur. Þegar dansað er á tveimur er dansafbrigðið líkara mambó, og tónlist sem hentar til að dansa á tveimur hefur oft áherslu á 2. Og 6. Taktinum. Í New York hefur svo þróast sérstakur NY style taktur, þar sem í raun er blandað saman stílunum við að dansa á einum og tveimur, þ.e. að grunnsporin eru stigin á 123,567, en stefnubreytingin er eins og gert er á tveimur. Eddie Torres, oft nefndur „King of Mambo“ er talinn höfundur NY on 2, og er þessi stíll algengur á salsaklúbbum í New York. Auðvitað má líka finna Kúbanska salsa klúbba í New York þar sem dansað er á einum.
Tónlistin
Hér eru nokkur nöfn á tónlistarmönnum / hljómsveitum úr salsaheiminum sem SalsaIceland mælir með:Ibrahim Ferrer er hluti af Buena Vista Social Club hópnum frá Kúbu, en í raun mælum við öllum þeim tónlistarmönnum sem koma úr þessum hóp, eins og Compay Segundo ofl.
Oscar D‘León, fæddur 1943 í Venezuela, stundum kallaður „El sonero del mundo“ eða „the improvisor of the world“ vegna fjölhæfi hans við tónlistarflutning.
Fania All Stars hópurinn var stofnaður árið 1968 af útgáfufyrirtækinu Fania Records, sem var leiðandi í framsetningu salsatónlistar og í eigu stofnanda hópsins: Johnny Pacheco. Það er talið að nafnið salsa hafi verið sett fram sem samnefnari þessarar breiðu latínamerísku tónlistar- og dansstefnu af meðlimum Faniu All Stars.
Meðal tónlistarmanna Fania All Stars hópsins var Celia Cruz – „la reina de salsa“ eða drottning salsans, svokölluð. Kúbönsk þjóðhetja og ein af áhrifamestu kúbönsku tónlistarmönnunum sem ruddu brautina fyrir þá sem seinna komu. Þessar plötur hennar hlutu Grammy verðlaunin:
Ritmo En El Corazon (Rhythm in the Heart) frá 1990, 2003 Best Salsa Album La Negra Tiene Tumbao (The Black Girl Has Rhythm/Attitude), 2003 Best Salsa/Merengue Album Regalo Del Alma (Gift From The Soul). Einnig mælum við með Celia Cruz and Friends: A Night Of Salsa 2001 sem hlaut latin grammy verðlaun sem besta tónleikaplatan.
Fleiri Fania All Stars tónlistarmenn voru Willie Colón,Eddie Palmieri,Ruben Blades, Tito Puente, Larry Harlow, Ray Barretto, Rubén Blades, Hector Lavoe, og margir fleiri. Til gamans má geta að kvikmyndin El Cantante er byggð á ævi Hector Lavoe, sem Marc Anthony og spúsa hans, Jennifer Lopez framleiddu og léku í árið 2007. Allir þessir tónlistarmenn eru tíðir gestir á playlistum salsakvölda SalsaIceland.
Ofantaldir tónlistarmenn tilheyra eldri kynslóð salsatónlistarinnar og teljast „klassíkerar“ hennar. Þeir hafa rutt brautina fyrir þessa, yngri tónlistarmenn salsaheimsins sem við mælum með:
Marc Anthony – fæddist í New York 1968 og er ættaður frá Puerto Rico. Hann er sá núlifandi salsatónlistarmaður sem á mestri velgengni að fagna og hefur unnið til fjölda Grammy og Latin Grammy tónlistarverðlauna.
Los Van Van er kúbönsk hljómsveit, upphaflega stofnuð árið 1969. Hún er enn starfandi í dag. Hún hefur reynst mörgum salsatónlistarmanninum góður skóli og státar mörgum þekktum gestasöngvurum gegnum tíðina. Tónlist Los Van Van er þekkt fyrir bræðing afró-kúbanskra ryþma, rokks, funks, hip hop og kúbanskrar tónlistar. Hljómsveitin er þekkt fyrir að vera þétt tónleikaband, gríðarlega vinsæl meðal tónleikagesta alls staðar í heiminum.
DLG var stofnuð árið 1990 sem blandar kúbönsku salsa, reggae, reggaeton og hip hop. Hljómsveitin starfaði til ársins 2000 þegar hún hætti. Helstu slagarar hennar teljast þessir: "La quiero a morir", "Juliana", "No morirá", "Volveré", "Todo mi corazón", and "Me va a extrañar".
Isaac Delgado – maðurinn með silkiröddina, kúbanskur og rómantískur. Ein af verðandi klassísku rueda fléttunum er einmitt kennd við dansstíl þessa söngvara: „enchufla con Isaac“.
La India – prinsessa salsans. Oft er rætt um þessa stúlku sem arftaka Celiu Cruz, en rödd hennar þykir sjálfstætt hljóðfæri út af fyrir sig.
Orishas – skemmtileg blanda af hip hop-i og kúbanskri tónlist.