Getustig
Hvar eiga "dansvanir" heima?
Okkur til mikillar ánægju fáum við reglulega til okkar áhugasama nemendur sem hafa reynslu af salsa annars staðar frá, eða hafa reynslu af öðrum dönsum. Við bendum þessum aðilum á sérstaka, ókeypis, matstíma sem við bjóðum upp á. Þar gefst öllum kostur á að koma og dansa við SI kennara, og fá ráðleggingar um á hvaða getustig er best að skella sér. Þessir tímar eru í boði fyrir upphaf byrjendanámskeiða, og stundum fyrir prufutíma á salsakvöldum, en best er að hafa samband á salsaiceland@salsaiceland.is til að fá upplýsingar um næsta matstíma. Margir dansvanir hafa einnig farið þá leið að kaupa sér einkatíma, fá mat og ráðleggingar, og kennslu í því sem upp á vantar til að geta slegist í för með lengra komnum nemendum. Þá gengur gjaldið á einkatímanum upp í námskeiðsgjaldið.Byrjendanámskeið
Fyrir alla, vana og óvana dansara. Fullnuma nemendur þessa stigs geta stýrt og fylgt með flæði í grunnsporunum þremur, í lokuðu og opnu haldi. Þeir hafa skýra hugmynd og getu um nærveru í gripi án þumla og fjöðrun í stöðugum ramma. Þeir geta framkvæmt grunnfléttur eins og einfalda snúninga fyrir herra og dömur, enchufla og nokkur afbrigði af henni, svo og þessar sömu fléttur með báðum höndum.2. stig
Fullnuma nemendur þessa stigs geta greint á milli Cuban style salsa og LA style salsa og framkvæmt grunnfléttur í báðum stílum. Dæmi eru setenta, cross body lead, flóknari enchufla fléttur og grunnþekking á rueda de casino.Þessir nemar hafa getu til að framkvæma fótafimi (footwork) og geta notað mismunandi hluta líkamans í hreyfitækni (body isolation) án þess að það trufli fylgja/stýra tækni þeirra í pardansi. Fylgja/stýritækni í opnu og lokuðu haldi ætti að nægja til geta framkvæmt allar lærðar fléttur í hraðari lögum og með ólíkum dansfélögum. Dömurnar hafa lady styling hreyfingar í enchufla afbrigðum og mjaðmavinnu í skrefunum (contra-hip-movement).
3. stig
Fullnuma nemar þessa stigs hafa grunn í LA style og cuban style salsa, geta greint mun þessara stíla, og dansað þá báða. Herrarnir hafa hugmyndaflug, fótavinnu og stýritækni til að setja saman 3-4 takta fléttur, og dömurnar hafa snúningstækni, fótavinnu og fylgitækni til að geta uppfyllt þau verkefni sem herrarnir leggja fyrir þær á hægum og hraðari takti. Geta í sjálfstæðri fótafimi (footwork) inn á milli í pardansi er til staðar. Fléttur þessa stigs einkennast af samsetningu inside og outside turn, snúning fyrir dömur og herra, crazy cuban combos, ofl. sem krefur nákvæmni í stýra/fylgjatækni. Þessir nemendur hafa 1-2 ára reynslu af reglulegum dansi á salsakvöldum/æfingatækifærum í farteskinu.4. stig
Fullnuma nemar þessa stigs hafa flæði í dansinum og litla þörf fyrir grunnskref á milli flétta. Herrar ættu að hafa stýritækni, reynslu og hugmyndaflug til að geta sett saman 7-8 takta fléttur og framkvæmt styling á grunnfléttur. Þeir ættu að geta stýrt tvöföldum snúningi, svo og að hafa snúningstækni til að framkvæma tvöfaldan snúning stakir. Dömur hafa snúningstækni til að framkvæma tvöfalda snúninga á staðnum og á ferð (travelling). Þær hafa „spotting tækni“ til að geta snúið endurtekna snúninga án vandræða, öryggi og hreyfitækni til að gera styling og fylgjatækni til að valda fléttum þó merkin verði óljós og takturinn hraður.Bæði herrar dömur geta framkvæmt sjálfstæða fótafimi og geta skipt um takt, t.d. yfir í púlstakt eða chacha í hægari lögum. Sem dæmi um fléttutækni á þessu stigi eru copa, titanic, wrap og torneo. Fullnuma nemendur þessa stigs hafa meira en 2ja ára reynslu af reglulegum dansi á salsakvöldum/æfingatækifærum í farteskinu.
Lady Style
Hér koma dömurnar saman og dansa í friði fyrir strákunum. Þó strákarnir stýri fléttunum sem gerðar eru á dansgólfinu getum við alveg leikið okkur og leyft sköpunargleðinni og danstilfinningunni að njóta sín.Þá þurfum við að geta notað allan líkamann í dansinum og leikið okkur með fótavinnu og takt. Þetta lærum við á námskeiðinu, til að geta fyllt pardansinn því kryddi sem við viljum.Lady style 1 – fyrir þær sem eru að byrja í lady style-ing.
Lady style 2 – fyrir þær sem lokið hafa 1-2 námskeiðum í lady style-ing.
Lady style 3 – fyrir þær sem lokið hafa 3-4 námskeiðum í lady style-ing.