Gjafabréf

SalsaIceland býður upp á gjafabréf sem gerir þér kleift að gefa einhverjum inneign á salsanámskeið hjá SalsaIceland (gildir ekki á workshop með erlendum gestakennurum). Gjafabréfin eru að upphæð 2.500, 5.000 og 10.000 kr.

Ef þú vilt kaupa gjafabréf hjá SalsaIceland skrifaðu okkur þá póst á salsaiceland@salsaiceland.is, tilgreindu upphæð, nafn þess sem á að eiga inneignina og nafn þitt og símanúmer. Við svörum um hæl með upplýsingum um greiðslumöguleika og síðar staðfestingu á að við höfum sent þér gjafabréfið.