Starfsemin
Frá stofnun SalsaIceland árið 2003 hefur starfsemin stigmagnast úr einstökum helgarnámskeiðum í breiða, reglulega salsastarfsemi sem felst í dag í eftirtöldu:
Námskeiðahald
Regluleg námskeið á sex getustigum sem hefjast nokkrum sinnum á önn. Árinu er skipt í vor-, sumar- og haustönn. Inn á milli eru helgarnámskeið með erlendum gestakennurum á heimsmælikvarða. Þar má helst nefna kennara SalsaAkademíunnar í Stokkhólmi sem er stærsti salsadansskóli Skandinavíu. Henni stýra Marina og Ibi, en þau eru margfaldir verðlaunahafar af HM í salsa. Þau eru, ásamt Eddu Blöndal, yfirkennarar SalsaIceland, og námsskrá SalsaIceland er byggð á námsskrá SalsaAkademíunnar. Sjá umfjöllun um kennara og gestakennara SalsaIceland hér.Uppbygging salsasamfélags í Reykjavík með salsakvöldum
Gjaldmiðill í alþjóðlega salsasamfélagiðSalsaIceland heldur regluleg salsakvöld á skemmtistöðum Reykjavíkur og býður upp á ókeypis prufutíma fyrir byrjendur í byrjun þeirra. Salsakvöldin eru að fyrirmynd salsastaða erlendis, þar sem fólk kemur saman og á góða stund á dansgólfinu. Stýra/fylgjatæknin er í raun gjaldmiðill inn í salsasamfélagið og gerir öllum kleift að mæta á salsaklúbb með eða án félaga og skella sér á dansgólfið. Ekki er hefð fyrir því að fólk dansi alltaf í sömu pörum heldur bjóða allir upp til skiptis. Þetta reynist frábær félagsskapur opins fólks sem hefur gaman af að dansa og er hluti þess sem gerir salsa að svo vinsælu dansformi á heimsvísu. Salsakvöld SalsaIceland hafa slegið í gegn á undanförnum árum og má að jafnaði finna iðandi fullt dansgólf brosandi fólks sem býður byrjendur velkomna. Dagskrá salsakvölda má finna undir atburðir framundan hér til hliðar.
SalsaIceland stendur einnig fyrir stærri viðburðum nokkrum sinnum á ári. Einn af þeim er jólaball SalsaIceland en hér má finna myndband frá jólaballinu 2009 á youtube.
Sérsniðin þjónusta að hópum
SalsaIceland tekur að sér hópefli /sýningar/uppákomur sem henta hóp vinnufélaga, vina, í veisluna eða í aðrar uppákomur. Innan okkar raða eru reyndir salsadansarar, samkvæmisdansarar og jafnvel karatekennarar og við höfum áralanga reynslu í að búa til sýningar og skemmtilegar uppákomur fyrir hópa sem vilja þjappa sér saman og eiga góða stund.Salsa fyrir brúðhjón
Fjölmörg brúðhjón hafa fengið aðstoð okkar við dansa í brúðkaupinu. Sum pör koma á námskeið, önnur taka einkatíma sem er áhrifarík og fljótleg leið til framfara, sérstaklega fyrir einstaklinga óvana dansi. Einkatímarnir geta farið fram heima hjá ykkur, ef ósk/þörf er fyrir því. Dansinn þarf ekki að vera flókinn, oftast nægja nokkrir tímar til að læra grunninn og byggja upp öryggi. Sumir velja salsa í stað brúðarvalsins, aðrir cha cha cha, dirty dancing, jive eða biðja okkur að búa til atriði við uppáhaldslag sitt. Allt þetta er í boði hjá þaulreyndum kennurum sem hjálpa ykkur að gera augnablikið ógleymanlegt.Steggjanir/gæsanir
Kennarar SalsaIceland koma með heita salsasveiflu inn í steggja- og gæsapartý, oftast með því að taka hópana í prufutíma eða að halda sýningu. Þannig höfum við brugðið á ýmsan leik með steggjum og gæsum, hvort sem um er að ræða salsa, samkvæmisdansa, sjálfsvörn, "eighties" eða diskó. Hafið samband við okkur og við sjóðum saman eitthvað skemmtilegt sem hentar fyrir ykkar steggja og gæsapartí.Eigum við að kíkja í brúðkaupið, halda sýningu eða koma stuði í gestina eftir matinn?
Salsa hleypir alltaf stuði í mannskapinn. Við mætum í brúðkaupið, höldum jafnvel prufutíma fyrir þá sem vilja og endum svo á sýningu. Þetta hefur oft verið það sem þarf til að koma fólki út á dansgólfið eftir langt borðhald. Mörg brúðhjón velja að hafa prufutíma fyrir alla gestina, sýna svo brúðkaupssalsað sitt, og svo geta allir gestirnir dansað salsa þeim til samlætis í framhaldinu.