Ungbarnasalsa

Ungbarnasalsa hefur farið sigurför um Kanada og Bandaríkin og er hægt og rólega á leiðinni til Evrópu. SalsaIceland er eins og alltaf í fararbroddi og býður nú upp á námskeið fyrir nýbakaða foreldra með ungabörn sín.

Ungbarnasalsa snýst um að fá mjúka kvenlega hreyfingu á kroppinn við skemmtilega tónlist, á meðan börnin eru borin á líkamanum í burðarsjali. Þú getur fengið lánað sjal hjá okkur eða komið með þitt eigið sjal eða burðarpoka. Ungabörn njóta þess sömuleiðis að vera þétt að móður sinni í taktvissri, vaggandi hreyfingu og eiga það til að sofa vært á meðan mamman dansar.

Tímarnir byggjast upp af einföldum sporum sem allir geta lært og námskeiðið miðast við að nýbakaðar mæður séu að fá hæfilega áreynslu í hverjum tíma. Tímarnir henta þó einnig þeim sem eru byrjaðar að koma sér í form og í raun öllum sem hafa gaman af því að dansa. Allur er varinn góður, og við erum því með sjúkraþjálfara á okkar snærum sem hefur yfirumsjón með efni námskeiðsins, en minnum þó á að hver og einn verður að hlusta á eigin líkama. Styrk tónlistarinnar er einnig stillt í hóf til að skaða ekki lítil eyru.



Við erum með nóg pláss og góða aðstöðu til að skipta á börnunum og gefa. Ef þú óskar heldur eftir því að barnið horfi á er þér velkomið að koma með vagninn, bílstólinn eða teppi til að hafa það hjá þér á meðan þú dansar. Þarfir barnsins ganga fyrir og okkur finnst ekkert sjálfsagðara en að sinna þeim í miðjum tíma.

Algengar spurningar

Hversu gömul mega börnin vera?

Við mælum með því að barnið sé að orðið 6-8 vikna áður en þið byrjið, en það er að sjálfsögðu val foreldranna. Þessi tími miðast líka við að mömmur séu tilbúnar til að byrja hægt og rólega að hreyfa sig. Það eru engin efri aldursmörk fyrir börnin, og miðast einungis við að barnið sé sátt við að vera í sjalinu, og mamman geti borið það, í 45 mínútur.

Þarf ég að koma með eitthvað?

Komdu í léttum fötum og tilbúin til að hreyfa þig. Þægileg föt, innanhúss íþróttaskór eða flatbotna dansskór ef þú átt. Við mælum með að þú komir með vatnsbrúsa með þér og þar að auki það sem þú þarft til að sinna barninu.

Af því að barnið er þétt upp að líkama þínum myndast þó nokkur hiti og sviti í tímanum. Þess vegna er sniðugt að vera með föt til skiptanna fyrir barnið svo þau þurfi ekki að fara út rök af svita.

Þú getur fengið lánað sjal hjá okkur til að bera barnið í (upp að 6 kg). Ef þú vilt frekar nota þitt eigið sjal eða burðarpoka er það að sjálfsögðu velkomið. Við aðstoðum þig við rétta notkun á sjali eða burðarpoka.

En ég kann ekkert að dansa..?

Sem er í fínu lagi. Sporin eru einföld og kennd frá grunni og engin danskunnátta er nauðsynleg. Tímarnir snúast heldur ekki um að framkvæma hlutina fullkomnlega, heldur um að hreyfa sig, hlusta á tónlistina, og njóta samveru við barnið þitt og aðrar mæður og þeirra börn.

Mega systkini barnsins koma með?

Systkini eru velkomin með svo lengi sem þú hafi ekki truflandi áhrif á tímann. Þau mega dansa með og leika sér, inní salnum með okkur, frammi í litla sal eða jafnvel móttöku ef þau vilja.

En ef barnið mitt fer að gráta, sofnar eða er svangt í miðjum tíma?

Ekkert mál! Við bjóðum upp á smábarnavænt umhverfi og erum ekkert hissa þó einhver gráti smá, fái að drekka eða æli á gólfið. Leiðbeinandinn er sjálf móðir og veit hvernig hlutirnir eru á þessum tíma. Þarfir barnsins ganga fyrir og það er ekkert sjálfsagðara en að skreppa fram, gefa barninu, skipta á því eða koma því fyrir annars staðar í miðjum tíma. Aðstaðan okkar býður þægilega upp á þessa kosti.

Við bendum á að oft eru þetta óþarfa áhyggjur. Takturinn og hreyfingin ásamt því að vera nálægt mömmu sinni hefur róandi áhrif á börnin og þau sofa oft í gegnum allan tímann.

Ef barnið þitt er sofandi þegar þú kemur getur þú hagað hlutunum eins og þér hentar. Þú getur dansað á meðan barnið klárar lúrinn og tekið það svo með þegar það vaknar.

En ég er hrædd um að ég sé ekki tilbúin..?

Flestar nýbakaðar mæður hafa einmitt sömu áhyggjur og oft festumst við í þeim og komum okkur aldrei af stað. Ungbarnasalsa er tilvalið til að koma sér af stað, skemmtilegt og áreynslunni stillt í hóf, en við bætum við nytsamlegum styrktaræfingum ætlaðar nýjum mæðrum.

Þér er velkomið að koma og prófa tíma í upphafi námskeiðisins og hætta svo við eða koma seinna. Við óskum þó eftir að þú greiðir fyrir námskeiðið strax í upphafi, og við endurgreiðum þér svo hlutfallslega það sem þú ekki nýtir þér.

Get ég komið með tvíbura?

Já, þið eruð öll velkomin! Tvíburar geta komið með báðum foreldrum sínum, eða þriðja aðila svo þið getið öll dansað í einu. Eða einn aðili getur skipst á að dansa með börnin.

Fleiri spurningar? Sendu okkur póst á ungbarnasalsa@salsaiceland.is og við svörum um hæl!