Uppbygging námskeiða

Byrjenda- og annars stigs námskeið

Fjögur getustig eru í boði - tölusett frá byrjendanámskeiði (1. stig) og upp á við. 1. og 2. stig eru 10 skipti hvert, kennd 2svar í viku. Markmiðið er að nemendur okkar séu tilbúnir á dansgólf salsakvöldanna sem allra fyrst og geti fylgt/stýrt. Þetta næst helst með því að rótera milli félaga á námskeiðum, þar sem allir dansa við alla. Þetta þýðir að þið þurfið ekki að hafa félaga til að skrá ykkur, þó það sé ódýrara. Athugið, ef óskin er að halda sé við einn dansfélaga er það líka alveg sjálfsagt.

Aukin þjónusta fyrir SalsaIceland herra

Endurtekin 1. og 2. stigs námskeið – FRÍTT!
SalsaIceland býður herrum sínum að endurtaka byrjendanámskeiðin – endurgjaldslaust, þetta er vegna þarfar á æfingu, auk þess sem þeir aðstoða okkur við að stemma stigu við ójöfnum kynjahlutföllum. Herrarnir stýra dömunum og hafa þannig frumkvæði að þeim dansfléttum sem framkvæmdar eru. Við bjóðum einnig SalsaIceland dömum að dansa frítt sem herrar, þetta til að auka „fylgja-tækni“ þeirra sem fleygir fram við aukinn skilning á stýringu. Þeir herrar (sem og dömur sem dansa sem herrar) sem tekið hafa 2. stigs námskeið hjá okkur 2svar fá einnig frítt á 2. stigs námskeið okkar eftir það

Framhaldsnemendur

3. stigs námskeið og upp á við
Frá og með 3. stigs námskeiði krefjumst við skráningar í pörum. Félaga er hægt að finna á námskeiðum, salsakvöldum og á Fésbókinni. Stakir einstaklingar geta skráð sig á biðlista, sem við reynum að manna, en áhrifaríkast er að skrá sig í pörum. Á þessu stigi bjóðum við herrum 2fyrir1 tilboð, þ.e. að þeir dansa tvöfalt námskeið, og manna þannig 2 dömur á námskeiðinu. Þetta gefur góða æfingu fyrir þá og kærkomið tækifæri til smáatriðavinnu í stýringu sem er nauðsynlegt til að flóknar fléttur gangi upp. Þetta hefur mælst geysivel fyrir hjá herrum okkar. Þessi stig skiptast í fleiri styttri námskeið með mismunandi fléttum og kallast 3a, 3b, 3c o.s.frv.

Einkatímar

Þetta form kennslu verður sí vinsælla meðal nemenda SalsaIceland, hvort sem um ræðir byrjendur eða lengra komna. Það hentar vel til skjótra framfara og gefur tækifæri til einstaklingsbundinnar ráðgjafar og góða æfingu í stýra/fylgjatækni.
Allir kennarar SalsaIceland gefa kost á sér í einkakennslu. Kennslustundin er 50 mínútur og framkvæmd tímanna er samkomulagsatriði milli nemanda og kennara. Til að bóka má senda okkur póst á salsaiceland@salsaiceland.is.