ZUMBA






SalsaIceland býður upp á Zumba sem er skemmtileg blanda af dansi og líkamsrækt. Tónlistin er fjölbreytt og skemmtileg, sýndar eru einfaldar fléttur með danssporum sem innihalda mikla brennslu og gaman er að "fíla sig" í. Á nokkrum tímum lærast rútínurnar, líkamsræktin gleymist og eftir á líður okkur eins og eftir gott partý á dansgólfinu. Hægt er að slást í för hvenær sem er, óháð námskeiðsupphafi. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og höfum fjöldatakmarkanir í tímunum hjá okkur, sem einkennast af góðri stemmningu.

Hjá SalsaIceland er hægt að fara nokkrar leiðir til að stunda Zumba:
Allir fá ókeypis prufutíma, óháð því hvenær þeir byrja.
5 vikna námskeið - 2 skipti í viku, auk laugardagstíma á 50% afslætti, þegar maður er í stuði. Athugið, námskeiðsskráning veitir forgang yfir klippkorthafa í tíma á þriðjudögum og fimmtudögum.
15 vikna námskeið - 2 skipti í viku, auk ókeypis laugardagstíma. Við verðlaunum þessar hörkudömur með feitum afslætti! Athugið, námskeiðsskráning veitir forgang yfir klippkorthafa í tíma á þriðjudögum og fimmtudögum.

Laugardagstímar- þetta eru opnir tímar fyrir klippkorthafa, námskeiðsþátttakendur og aðra gesti og gangandi.

Klippkort - Fyrir þær sem eiga erfitt með að stunda zumba reglulega er klippkortið besti kosturinn. Í þriðjudags/fimmtudagstíma hafa skráðar dömur á námskeið forgang í salinn, en í hverjum tíma er 15 plássum haldið lausum fyrir klippkorthafa. Kortið er hægt að samnýta og gildir í eina önn í einu (þ.e. vor- vs haustönn).

Verð


Verðlistinn okkar svona:

5 vikna námskeið: 9.500 kr - forgangur í sal á þriðjudögum og fimmtudögum, og 50% afsláttur á laugardagstímum.
15 vikna námskeið: 25.700 kr - forgangur í sal og ókeypis laugardagstími.
10 skipta klippikort: 12000 kr. - gildir í alla tíma, a.m.k. 15 laus pláss fyrir klippkorthafa á þriðjudögum og fimmtudögum, fyrst kemur fyrst fær á laugardögum.
Stakur tími: 1.300 kr.
5 skipta laugardagskort: 5500 kr.

Um Zumba

Nánari upplýsingar um zumba má nálgast á heimasíðunni www.zumba.com.

Vinsamlegast athugið að SalsaIceland býður aðstöðu til klæðaskiptana, en ekki sturtuaðstöðu. Flestar koma til okkar í leikfimifötunum.
Munið staðsetninguna okkar, stúdíó SalsaIceland er til húsa að Grensásvegi 12a, 2. hæð.

ATHUGIÐ AÐ ALLIR GETA KOMIÐ Í ÓKEYPIS PRUFUTÍMA HVENÆR SEM ER, svo framarlega sem plássið leyfir :)
Hér má sjá kynningarmyndband SalsaIceland fyrir zumba.